Playstation PortableComputerPlaystation 3Nintendo WiiXBoxXbox 360Playstation 2Nintendo DS
Search
Velkominn Gestur.
Vinsamlegast skráðu þig inn.

Innskrá | Nýskrá | PW? ]
Þú átt 0 punkta
Gagnrýni: Uncharted ...
10/10 - 139 dögum

Gagnrýni: InFamous
10/10 - 139 dögum

Gagnrýni: Uncharted ...
8.0/10 - 146 dögum

Gagnrýni: FIFA 10
9.0/10 - 150 dögum

Gagnrýni: Guitar Her...
10/10 - 250 dögum
Á að splæsa í Call of Duty Modern Warfare 2???
Ekki séns! Skítaleikur! - 0%
Kannski, er ekkert að heilla mig mikið - 33%
Já, hann lítur vel út - 0%
Pew pew, skal skjóta allt og alla í honum, pew pew, bang bang! - 67%

6 Atkvæði - 0 Komment
RESISTANCE: RETRIBUTION (PSP)
Fréttir Greinar Skjáskot Video Svindl FAQ Skrár Spjallborð
9.0
GAGNRýNI : RESISTANCE RETRIBUTION
Resistance Retribution er glæsilegur PSP leikur sem er endingargóður og býður upp á alls kyns áhugaverða spilunarmöguleika.

Skrifað af Aguststefans á Apr 1, 2009 20:33 (342 dögum)

 
Kynning
 
PSP tölvan hefur átt mjög erfitt undanfarin ár og margir voru búnir að afskrifa vélina. Þangað til að Sony tilkynnti að stærstu leikjaseríurnar á PS3 myndu koma út á PSP. Resistance Retribution er fyrsti leikurinn af þessum leikjum sem kemur út og á að halda uppi heiðri Resistance leikjanna sem hafa slegið í gegn á PS3. Spurningin er hinsvegar sú, er eitthvað varið í Resistance Retribution og virkar leikurinn á PSP?
 
Sony Bend eru framleiðendur leiksins en það eru þeir sömu og hafa gert hina frábæru Syphon Filter leiki fyrir PSP. Syphon Filter leikirnir hafa verið í þriðju persónu og verið ótrúlega vel heppnaðir. Það kom því ekki á óvart að Sony Bend skyldi ákveða að Resistance Retribution myndi spilast á sama hátt.
 
Saga
 
Resistance Retribution er frábrugðinn hinum Resistance leikjunum á PS3 hvað varðar sögupersónu, en hetjan okkar er hinn Breski James Grayson og er þetta því fyrsti leikurinn sem inniheldur ekki Nathan Hale. Leikurinn gerist á milli atburða í Resistance Fall of Man og Resistance 2 eða árið 1951.
 
Til að fara létt í gegnum söguna þá hefst leikurinn á að Grayson kemur að bróður sínum í umbreytingarstöð Chimera. Bróður hans er sýktur og Grayson neyðist til að skjóta hann. Grayson yfirgefur svo herliðið sitt og fer að eyða umbreytingarstöðum upp á sitt einsdæmi. Eftir að hafa eytt 26 slíkum stöðvum hittir hann á herliðið sem þarf samkvæmt reglum að setja hann í fangelsi fyrir að yfirgefa sig. Raine Bouchard, meðlimur í Maquis andspyrnuhreyfingunni, kemur í fangelsið og fær Grayson til að hjálpa sér við að rannsaka umbreytingarstöðvarnar sem hafa verið að taka breytingum.
 
Grayson er hrikalega harður gaur og hans eina markmið í lífinu eftir dauða bróður síns er að drepa Chimera. Hann kemur oft með gull setningar eftir að hafa drepið Chimera gaura sem undirstrikar hversu harður hann er. Söguþráður leiksins er góður og heldur uppi fínum dampi. Það koma vissulega upp nokkur hrikalega klisjuleg atvik í sögunni en leikurinn tekur sig ekki of alvarlega og sleppur vel frá þessu.
 
Grayson vill einungis losa heiminn við Chimera
 
Grafík og hljóð
 
Leikurinn notast við sömu vél og Syphon Filter: Logan’s Shadow sem leit mjög vel út þegar hann kom út. Leikurinn er mjög álíka Logan’s Shadow grafíkslega, sem er vissulega jákvætt en ég verð að viðurkenna að ég bjóst við aðeins meiru. Eftir að hafa spilað leiki eins og God of War: Chains of Olympus á PSP þá sér maður að það er hægt að gera betur. En ekki misskilja mig, leikurinn er vel yfir meðallagi grafíkslega séð. Myndböndin í leiknum eru hrikalega flott og virka eins og verðlaun fyrir spilarann að fá að horfa á þau á milli verkefna.
 
Hvað hljóðið í leiknum varðar þá er í raun lítið hægt að segja. Náttúruhljóð eru góð en þau eru ekkert sem maður hefur ekki heyrt áður. Þeir sem hafa spilað hina Resistance leikina ættu að kannast við aragrúa af hljóðum sem heyrast í leiknum. Það verður þó að benda á að hljóðsetning persóna í leiknum er alveg til fyrirmyndar. Raddir og líkamshljóð koma hrikalega vel út og gefa leiknum aukið líf.
 
Stjórnun
 
Stjórntæki leiksins eru hreint út sagt frábær. Það hefur reynst mörgum fyrirtækjum erfitt að gera skotleiki fyrir PSP vegna þess að vélin hefur aðeins einn Analog pinna. Sony Bend hefur hinsvegar neglt hina réttu formúlu hvernig á að stjórna skotleikjum fyrir PSP með Syphon Filter leikjunum. Það kom því engum á óvart að Sony Bend var fengið til að gera Resistance Retribution. Þeir sem hafa spilað Syphon Filter leikina á PSP munu detta beint í gírinn, en þeir sem hafa ekki spilað þá munu lenda á smá vegg. Það mun taka svolítinn tíma að ná fullkominni stjórn á stýringu leiksins en þegar þú ert kominn með stýringuna á hreint þá muntu aldrei vilja hafa þetta öðruvísi.
 
Leikurinn spilast eins og þessi klassíski skotleikur en til að hafa meiri hraða og hasar í gangi í leiknum þá notast leikurinn við svokallað “aim-assist” sem virkar þannig að um 50% af skjánum er svæði sem Grayson getur miðað á. Þannig að ef óvinur fer inn í þetta “aim-assist” svæði þá miðar Grayson sjálfkrafa á óvininn. Það er hægt að taka þetta af eða ýta á upp á krossinum til að fara í nákvæmara mið sem notast ekki við “aim-assist”.
 
Hasarinn í leiknum er til fyrirmyndar og auðvelt er að stjórna Grayson
 
Tenging við Resistance 2

Resistance Retribution er fyrsti PSP leikurinn sem virkilega tengist við PS3 vélina. Ef þú átt bæði Resistance 2 og Resistance Retribution þá getur þú tengt PSP vélina við PS3 með snúru. Tveir nýir spilunarmöguleikar opnast með þessari tengingu.
 
Sá fyrri er að sýkja PSP vélina þína en þá verður Grayson sýktur af veiru Chimera. Hann getur andað neðansjávar og líf hans fyllist aftur eftir að hafa verið skotinn. Þetta breytir leiknum mikið og býður upp á að komast á svæði sem leikmenn komust áður ekki á. Einnig breytist taktík í skotbardögum töluvert.
 
Hinn möguleikinn er að spila leikinn með PS3 stýripinna. Ef þú átt DualShock 3 þá notar leikurinn titring. Ef þú prófar þennan möguleika hverfur miðunarhjálpin enda töluvert auðveldara að stýra Grayson með PS3 stýripinna.
 
Ég persónulega er hrikalega hrifinn af þessari tengingu og furða mig á því að eitthvað í líkindum við þetta hafi ekki verið gert áður. Sé þetta klárlega sem hlut sem Sony ætti að nota oftar.
 
Fjölspilun
 
Resistance Retribution býður upp á fjölspilun fyrir allt að 8 leikmenn í einu. Fjölspilun í PSP leikjum hefur verið ábótavant þá sérstaklega þegar spila á í gegnum netið en ekki við þá sem eru í næsta nágrenni við mann. Sony Bend hafði góða þjálfun í þessum málum eftir Syphon Filter: Combat Ops fjölspilunarleikinn sinn. Það má segja að loksins er kominn alvöru fjölspilunarleikur fyrir PSP en sá partur leiksins er mjög góður. Alls eru 5 mismunandi fjölspilunar möguleikar í boði, Deathmatch, Team Deathmatch, Capture the Flag, Containment og Assimilation.
 
Assimilation virkar þannig að einn er sýktur af veirunni og á að reyna að sýkja hina. Ekki er hægt að drepa sýktan einstakling og eiga hinir ósýktu einfaldlega að reyna að forðast hann. Containment virkar þannig að tvö lið reyna að verja svokölluð “coolant nodes” fyrir hvort öðru.
 
 Fjölspilunin í Resistance er einkar vel heppnuð
 
Ending
 
Það mun taka flesta um 10 klukkustundir að klára leikinn í fyrstu spilun sem er hrikalega gott fyrir PSP leik og jafnvel fyrir hvaða leik sem er. Þá er hægt að spila leikinn aftur og aftur og reyna að klára hann á erfiðara stigi eða reyna að safna öllum litlum aukahlutum. Það skemmir svo alls ekki að fjölspilun leiksins er afar góð og getur stolið tíma frá hverjum sem er. Ef þú kaupir Resistance Retribution máttu vera viss um það að þú ert að fara að eyða dágóðum tíma í leikinn sem er bara jákvætt.
 
 Resistance Retribution er magnaður PSP leikur
Lokaorð

Resistance Retribution er frábær viðbót í leikjasafn PSP vélarinnar og gerir hrikalega margt gríðarlega vel. Það eru hinsvegar sumir hlutir sem draga leikinn niður og má þar helst nefna það að einungis er hægt að save-a eftir að þú klárar verkefni. Þar sem flestir spila PSP leiki á ferðalagi getur það reynst ákaflega pirrandi að þurfa að gera stóran part af verkefninu aftur ef þú neyðist til að slökkva á tölvunni. Þegar allt er tekið saman stendur leikurinn þó ákaflega vel og er skyldueign fyrir PSP eigendur sem hafa aldur til og einnig fyrir aðdáendur Resistance leikjanna.
 
Skrifað af:AgustStefans
© Ágúst Stefánsson
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.
Myndefni fengið frá IGN.
 Okkar einkunn fyrir Gagnrýni : Resistance Retribution
9.3
Skemmtun
Frábær skemmtun nær alla leið
8.5
Grafík
Leikurinn er flottur en gæti verið betri
8.2
Hljóð
Hljóðsetning persóna til fyrirmyndar, annað í meðallagi
9.4
Spilun
Spilast æðislega, vantar þó grátlega fleiri save point
9.1
Fjölspilun
Einn af betri ef ekki besti fjölspilunarleikur á PSP
9.0
Stjórntæki
Það tekur tíma að læra á stýringu leiksins en hann gerir eins vel og PSP leyfir
9.0
Heildareinkunn
Resistance Retribution er glæsilegur PSP leikur sem er endingargóður og býður upp á alls kyns áhugaverða spilunarmöguleika.
Gefðu einkunn
Einkunn:
0.0
Skráðu þig inn til að kjósa!
Deila
URL Snag
Komment
Pósta Komment
Komment Reglur
    1. Það er bannað að blóta eða nota orð sem geta sært blygðunarkennd.
    2. Það er einnig bannað að spamma, ef ekki verður fylgt þessum tveimur reglum þá þýðir það bann fyrir viðkomandi.
Þú getur ekki kommentað sem gestur. Vinsamlegast skráðu þig inn eða búðu til aðgang.
Notandanafn:
Lykilorð:
Búa til aðgang?
Gleymdirðu lykilorðinu?
#1 Apr 1, 2009 20:53:21 (342 dögum)

Bumbuliuz
Flott grein og gaman að lesa hana.
Resistance: Retribution
Leikjavél:
Sony Playstation Portable


PEGI 16+: Þessi flokkur er notaður þegar myndræn framsetning ofbeldis (eða kynlífs) er þannig að það líkist raunveruleikanum. Ungt fólk í þessum aldursflokki ætti að þola ljótt orðbragð í meira mæli, hugmyndina um notkun tóbaks og fíkniefna og að sjá refsiverða háttsemi.
Okkar Einkunn
Einkunn Notanda
9.0
Frábær
9.0
1 Atkvæði
Einkunn Leiks
Meðlimir okkar setja leikinn Resistance: Retribution í 75 sæti af 6,065 leikjum.

75. Resistance: Retribution
Sony Playstation Portable
heim spjallið bloggið leikir greinar skjáskot video svindl fyrirtæki playstation 3 xbox 360 sony psp nintendo wii nintendo ds windows
Fréttir | Greinar | Bloggið | Skrár | Video | Svindl | Achievements | FAQ
Vinir og Vandamenn: GameOver.is | GamersGate.Com | Psx.is | XBOX360.IS

Vinsælt: Call of Duty 4: Modern Warfare | Prototype | Prototype | Odin Sphere | Worms 4: Mayhem | Grand Theft Auto III | Kingdom Hearts II | Football Manager 2008 | Race Driver Grid | Valkyria Chronicle