GAGNRýNI: KILLZONE 2![]() Skrifað af FILTHY ESKIMO á Mar 17, 2009 05:22 (358 dögum) |
||||||||||||||||
![]() Kynning
Það er búin að vera löng bið síðan 2005 þegar fólk sá hinn margfræga E3 Cgi trailer af Killzone 2. Eftir að fólk komst að því að þetta var ekki að rúlla í rauntíma þá var fólk efins að leiknum myndi ganga vel. Killzone 2 er án efa einn mest hæpaði leikur síðari ára og hefur lengi verið rætt um hann sem “Halo Killer” Playstation 3 af aðdáendum hennar.
Fjórum árum síðar er leikurinn tilbúinn og er komin á búðarhillur um allan heim og ég get með sanni sagt að leikurinn nær að lifa uppí væntingarnar sem hafa verið gerðar til hans og ef eitthvað nær að líta betur út en E3 trailerinn frá 2005.
![]() Killzone 2 er þriðji kaflinn í sögunni á milli Helghast og ISA. Fyrsti leikurinn sagði frá innrás Helghast á plánetuna Vektra, Killzone:Libertaion sem kom út á PSP segir frá hvernig ISA nær að hrekja Helgast frá Vektra, en ekki fyrr enn að hinn illi Keisari Helghan mann Scoal Visari hrifsar kjarnaodda frá ISA hernum. Killzone 2 hefst með mikilfengni innrás ISA manna á hina óvinveittu Helghan plánetu til að stöðva Visari í eitt skipti fyrir öll og endurheimta kjarnaoddana. Eftir að hafa spilað sem Jan Templar í fyrstu tveimur leikjunum ertu settur í spor sterahnakkans Sev.
Spilun
Þrátt fyrir fjölda af greinum um Killzone 2 sem tala um að leikurinn færi ekki neitt nýtt á borðið, gerir hann það. Þó að þessir partar eru ekki eins augljósir við fyrstu sýn fyrr enn að fólk hefur spilað leikinn. Killzone 2 hefur bylt skotleikja elementinu. Það var ekki fyrir svo löngu að Infinity Ward gáfu út Call of Duty: Modern Warfare og eftir að hafa lagt ófáa klukkutímana í bæði sögu leiksins og fjölspiluna var ég sannfærður að þetta væri hápunktur fps leikja á þessari kynslóð. Killzone 2 tók þá reynslu og fínpússaði og bætti við smáatriðum sem margir framleiðendur leikja gleyma og fullkomnaði þá.
Hið þróaða kerfi sem snýr að hvernig persónur leiksins bregðast við þegar þeir eru skotnir býr til innlifun sem ekki aðrir leikir bjóða uppá. Að sjá handlegg Helghast hermans flengjast til og frá á meðan þú tæmir heillt skothylki í hermanninn gefur þér sjáanlega tilfinningu við hvað þú ert að gera í leiknum. Guerilla Games vildi búa til stærsta Hollywood poppkorns smell sem völ var á með að fjarlægja allt af skjánum sem var ekki nauðsynlegt, að nota grafík filtera sem eru oftast notaðir í bíómyndum frekar enn leikjum. Að slökkva á HUD-inu og skotmiðinu bætir hvernig þú spilar leikinn. Til að byrja með telur þú allar kúlur sem þú ert að skjóta frá þér og vonar að næsta skiptið sem þú mætir Helghast hermanni þá verður það fullhlaðið og tilbúið í slaginn. Eftir að hafa spilað leikinn í talsverðan tíma færðu á tilfinninguna hvernig heilsan hjá þér er og hvað mikið af kúlum þú átt eftir.
![]() Nýja “lean and peak” kerfi kemur að góðum notum, sérstaklega í erfiðari stillingum af leiknum. Það kom mér á óvart hve vel kerfið virkaði í fyrstu persónu. Ég hafði áhyggur að þetta væri glötuð hugmynd, enn eftir að hafa notað það til fullnustu myndi ég vilja sjá fleiri framleiðendur skotleikja læra af þessu og nota. Þessi aðferð heldur þér inni upplifun leiksins og eykur á Hollywood upplifunina. Eins og flestir leikir er Killzone 2 ekki fullkominn. Að nefna suma galla finnst mér ég hálfpartinn vera að pota í smáatriðin, enn miðað við eftirvæntingar til leiksins er bara sanngjarnt að benda á hvar hefði mátt gera betur.
Líklega það augljósasta er stjórnun leiksins sem virðast þjást að smá laggi á milli hvað sem þú gerir á pinnanum og á skjánum. Það er vísbending sem bendir til að þetta megi rekja til ákveðna stillinga á PS3 vélinni fólk og hefur áhrif upp til sjónvarpsins og skapar þetta lagg. Guerilla Games hafa gefið út plástur við leikinn sem hefur lagað þetta talsvert, enn miðað við að þessi plástur kemur út nokkrum vikum eftir útgáfu leiksins hefur þetta óneitanlega áhrif á einkunina sem leikurinn fær. Það er eriftt að skilja hvernig leikur eins og þessi sem hefur kostað þetta mikið og er augljóslega mikið lagt í flaskar á svona einföldu atriði sem hefði verið hægt að finna úr þegar leikurinn var í prufunum fyrir útgáfu.
![]() Það er smá hikst á milli skiptinganna á “cutscenes” og spilunar leiksins, það er eitthvað sem allir verða varir við enn mér finnst líklegt að þú verðir of upptekinn að dást að útliti leiksins til að láta það hafa mikil áhrif á þig. Hreyfingarkerfi persónanna virkar pínu stíft og hikstar pínu, sérstaklega á milli þess að hlaupa og standa kyrr.
Trophy kerfi leiksins er vel úthugsað og spannar yfir bæði söguna og netspilun leiksins og eru eitt af því sem eykur á langlífi leiksins hjá spilurum.
Hljóð
Það er gaman að sjá háskerpu leik loksins nýta sér til fulls 7.1 hljóðkerfið sem Playstation 3 vélin biður uppá. Framleiðendur eiga til að gleyma að hljóð eins og flott grafík spilar mikið inní upplifinunni í leiknum sem er verið að spila, hvað þá ef það er stríðsleikur. Að finna fyrir upplifuninni að fá hljóðið úr stríðinu koma út öllum hátölurunum er ótrúlegt. Prufaðu að horfa á Hryllingsmynd án hljóðsins til að skilja sambærilegan hlut. Killzone 2 hefur frábæra hljóð effekta og ambient hljóð sem munu halda þér á sætisbrún sófans allan tíma og auka hjartaslögin, sem er gott vegna þess að raddsetningin í leiknum er veikasti parturinn í hljóðinu.
Grafík
Killzone 2 kynnir okkur fyrir bestu grafík sem völ er á óháð á hvaða leikjatölvu er spilað er á. Þetta nær hæðstu hæðum sem dýru “Úber” PC vélarnar bjóða uppá. Þó að kannski ekki öll texturinn í leiknum séu í fullkomnu HD er það effektarnir og filterarnir í leiknum sem gera þau fallegri framar öllu. Að sjá ljós skína í gegnum sandstorm, rauðu augum Helghast hermannana þegar þeir skjótast í gegnum þokuna af sandinum eru bara brot af því sem leikurinn skartar. Leikurinn keyrir á þéttum 30 römmum á sek að mestu með smá droppi sem er erfitt að taka eftir.
![]() Netspilun
Það er áberandi að Guerilla Games undirbjuggu sig vel og gerðu heimavinnuna sína þegar kemur að fjölspilunar parti leiksins. Fjölspilun er kjarni leiksins og ef að sögu partur leiksins klikkar þá er oftast fjölspilunin sem bjargar honum. Fjölspilun Killzone minnir mann margt á gömlu LAN daganna í skólanum eins og SWAT frá Irrational Games höfundum Bioshock. Guerilla sáu til þess að leikmenn hefðu nóg að leika sér með ranks og badges, sem er hægt að vinna sér inn og hækka sig upp ef þeir ná ákveðnum markmiðum í hverri spilun. Í stað þess að hafa lotu kerfi eins og er þekkt í svo mörgum leikjnum, ákvað Guerilla að hafa einn stóran leik sem endar ekki heldur skiptir um leikjatýpu eftir ákveðin tíma og heldur leikmönnum við efnið.
Þangað til núna hefur engin leikur komist nálægt að vera með eins góðan stuðning og Bungie Studios hafa sýnt Halo 3. Guerlilla eins og aftur hefur fylgst með hvað fólki líkar og virkar búið til frábæran stuðning í gegnum Killzone.com síðu sína og klan stuðningi í leiknum. Enginn annar leikjatölvu leikur hefur eins fín pússað klan kerfi. Hérna liggur einn að veikleikum leiksins einnig, með hve mikið Warzone treystir á klan spilun er hætta að þetta skemmi fyrir spilurunum sem eru ekki eins harðkjarna spilarar og vilja bara kíkja inn og spila nokkra leiki. Sum Badges sem þú færð er bara hægt að nota einu sinni innan leiks og er séns að fólk nái hreinlega ekki að prufa allt sem er í boði þar sem einhvern annar spilari hefur verið á undan þeim til þess.
![]() Niðurstaða
Killzone 2 er án efa einn af leikjunum sem eru líklegastir til að hreppa Leikur ársins 2009 og hefur hækkað staðalinn fyrir leikina sem koma á eftir. Að vera stillt upp sem leiknum frá Sony sem átti að “redda öllu” hefur reynst leiknum erfitt á pörtum. Hvort að hann sé þessu “Halo Killer” sem sumir vildu endilega kalla er erfitt að segja. Leikurinn er frábær skemmtun sem mun gleðja sem flesta. Ég mæli hiklaust með honum fyrir skotleikjaunnendur og þá sem hafa gaman af flottri grafík og hljóði og vilja hafa eitthvað til að sýna hvað Playstation 3 vélin þeirra getur.
Eitt er víst Killzone 2 mun halda áfram að fá fólk til að tala um sig í langan tíma í viðbót.
Skrifað af:FILTHY ESKIMO
© Einar (Mike) Magnús Sigurðsson
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar
|
||||||||||||||||
![]() |
Komment | ![]() |
|
||||||||||


































.jpg)







Mar 18, 2009 05:29:24 (357 dögum)







